Hagnýtar upplýsingar
Bílastæði
Við bjóðum gestum okkar ókeypis bílastæði á meðan pláss leyfir. Við viljum benda á að það er ekki hægt að panta þau eða taka frá.
Morgunmatur
Morgunverðarhlaðborð er innifalið í gistingu á hótel Cabin og er borið fram milli kl 06:00 – 10:00 alla morgna.
Einnig er hægt að biðja um morgunverð snemma fyrir þá sem þurfa að fara fyrr í flug.
Innritun
Innritun hefst kl 15:00. Ef óskað er eftir snemminnritun, vinsamlega hafið samband við starfsfólkið í móttökunni. Ef gestir vilja ekki vera ónáðaðir eru þeir beðnir um að nota „ónáðið ekki“ spjalið á hurðina.
Útskráning
Útskráning er fyrir kl 11:00. Vinsamlega hafið samband við gestamóttöku ef þið óskið eftir að halda herbergjunum lengur. Munið að skila lyklum í móttöku.
Reykingar
Reykingar og rafrettur eru stranglega bannaðar og eru ekki leyfðar við inngang hótelsins, nálægt herbergjagluggum, í herbergjunum og innandyra.
30.000 kr. sekt við reykingum.Móttaka og aðstaða
24 klst móttaka. Til þess að hringja í gestamóttökuna veljið nr. 9.
Strætó stoppar við vesturhlið hótelsins. Sjá nánari upplýsingar í móttöku.
Sjónvarp og útvarp
Sjónvarpsstöðvar: Hotel Cabin information channel, Rúv, 5star, ITV3, BBC One, BBC Two, E4, ITV, ITV2+1, ITV4, Channel 4, Channel 5, France 24, Kabel eins, ProSieben, SAT 1, 5 USA, TV 5 Monde Europe, Film 4
Útvarpsstöðvar: Rás 1, Bylgjan, Rúv
Verðmæti
Við getum ekki tekið ábyrgð á fjármunum eða öðrum verðmætum sem geymd eru í herbergjum. Hægt er að geyma verðmæti í peningaskáp í gestamóttöku.